1929
Útlit
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1929 (MCMXXIX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- 1. janúar - Neshreppur fékk kaupstaðarréttindi og hét eftir það Neskaupstaður.
- 8. mars - Fangelsið Litla-Hraun var stofnað.
- 28. mars - Nýtt geðsjúkrahús tók til starfa á Kleppi.
- 25. maí - Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður við samruna Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins.
- Sumar - Eldgos í Kverkfjöllum.
- Júlí - Varðskipið Ægir var tekið í notkun.
- 23. júlí - Basilíka Krists konungs (Landakotskirkja) á Landakoti í Reykjavík var vígð.
- 27. ágúst - 7 sauðnautskálfar fluttir til landsins í tilraunaskyni frá Grænlandi en drápust allir um veturinn.
- 15. september - Kvæðamannafélagið Iðunn var stofnað.
- 15. október - Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH) var stofnað.
- 21. desember - Varðskipið Þór strandaði við Húnaflóa.
- desember - Ungmennafélagið Einherji á Vopnafirði var stofnað.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Grunnur Þjóðleikhússins var byggður.
- Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson kom út.
- Útvarpsstöðin á Sjónarhæð hætti starfsemi.
- Tímaritið Ísafold hætti útgáfu.
- Samband ungra jafnaðarmanna var stofnað.
- Íþrótta- og ungmennafélag Keflavíkur var stofnað.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 7. júlí - Margrét Guðnadóttir, íslenskur læknir og prófessor við Háskóla Íslands (d. 2018)
- 29. október - Flosi Ólafsson, íslenskur leikari, leikstjóri og rithöfundur (d. 2009)
- 21. desember - Örlygur Hálfdanarson, íslenskur bókaútgefandi (d. 2020).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 30. ágúst - Sighvatur Bjarnason, reykvískur bankastjóri og bæjarfulltrúi (f. 1859).
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 10. janúar - Tinni var fyrst gefinn út af höfundinum Hergé.
- 11. febrúar - Lateransamningarnir: Vatíkanið fékk sjálfstæði frá Ítalíu.
- 26. febrúar - Grand Teton-þjóðgarðurinn var stofnaður.
- 4. mars -
- Herbert Hoover varð forseti Bandaríkjanna.
- Byltingarsinnaði stofnanaflokkurinn var stofnaður í Mexíkó. Hann ríkti næstu 71 ár í landinu.
- 27. júní - Litasjónvarp var fyrst sýnt opinberlega.
- 27. júlí - 3. Genfarsáttmálinn fjallaði um meðferð stríðsfanga.
- 22. október - Ríkisstjórn Aristide Briand í Frakklandi féll.
- 24. október - Kreppan mikla: Hlutabréf hríðféllu í kauphöllinni á Wall Street í New York. Dagur sem kenndur er við svartan fimmtudag og markaði upphaf fjárhagskreppunnar.
- 1. nóvember - Suður-Ameríkukeppni karla í knattspyrnu hófst.
- 7. nóvember - Museum of Modern Art opnaði í New York.
- Þrælahald í Jórdaníu var aflagt.
- Óskarsverðlaunin voru fyrst veitt.
- La Liga knattspyrnudeildin var stofnuð á Spáni.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 12. nóvember - Grace Kelly, bandarísk leikkona og furstafrú af Mónakó (d. 1982).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 4. apríl - Karl Benz, þýskur verkfræðingur og bifreiðahönnuður (f. 1844)
- 5. apríl - Otto Liebe, danskur forsætisráðherra (f. 1850).
- Eðlisfræði - Louis-Victor Pierre Raymond de Broglie
- Efnafræði - Arthur Harden, Hans Karl August Simon von Euler-Chelpin
- Læknisfræði - Christiaan Eijkman, Sir Frederick Gowland Hopkins
- Bókmenntir - Thomas Mann
- Friðarverðlaun - Frank B. Kellogg