Bleikja
- Bleikja getur einnig átt við Gulstör.
Bleikja | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Salvelinus alpinus Linnaeus, 1758 |
Heimskautableikja (oftast kölluð bleikja) (fræðiheiti: Salvelinus alpinus) er laxfiskur sem lifir bæði í ferskvatni og sjó á norðlægum slóðum. Hún getur náð allt að 12 kílóum að þyngd, en er oftast mun minni og vegur sjaldan meira en 500 grömm. Nafnið vísar til rauðbleiks litar á kvið fisksins.
Bleikja er sá ferskvatnsfiskur sem finnst nyrst og lifir í súrefnisríkum köldum vötnum sem botnfrjósa ekki. Afbrigði sem gengur í sjó, svokölluð sjóbleikja, hrygnir í ferskvatni.
Bleikja er vinsæl í sportveiði, og bleikjueldi er stundað í einhverjum mæli á Íslandi og í Noregi.
Bleikjueldi
[breyta | breyta frumkóða]Bleikjueldi er fiskeldi þar sem bleikjan er alinn upp í sláturstærð í eldisstöðvum. Árið 2010 var framleiðsla á bleikju á Íslandi um 3.500 tonn.
Helstu bleikjustöðvar á Íslandi eru Íslandsbleikja, Fagradalsbleikja, Glæðir, Tungusilungur, Hólalax, Rifós og Fiskeldið Haukamýrsgili. Um 70% af bleikjuframleiðslu 2009 var í höndum Íslandsbleikju en fyrirtækið rekur matfiskaeldi á Reykjanesi og seiðaeldi í Ölfusi. Margar af eldisstöðvum á Íslandi voru upphaflega byggðar fyrir laxeldi.
Stofnkostnaður við hefðbundnar strandeldisstöðvar (fiskur alinn í kerjum) er mjög hár en þar er fiskur alinn upp í trefjaplastkerjum en einnig er fiskur alinn í dúkklæddum tjörnum og er talið að kostnaður við gerð jarðvegstjarna sé ekki nema 1/6 af gerð hefðbundinna kerja. Algengastu jarðvegstjarnir eru lengdarstraumstjarnir 1,5 m djúpar, 3 metra breiðar og 30 metra langar. Slíkar tjarnir líkjast framræsluskurðum. Tjarnirnar eru dúklagðar til að auðvelda þrif og forðast jarðvegsbakteríur.
Vaxtarhraði fiska er háður hitastigi. Við venjulegar aðstæður 9-10 C tekur 12 mánuði fyrir seiði að ná í 100 gr þyngd. Talið er að við góðar aðstæður og skipulag megi framleiða 50-70 kg á ári af bleikju á hvern rúmmetra eldisrýmis í kerjum. Helsti kostnaður við bleikjueldi fyrir utan aðgang að vatni og landi er raforka vegna dælingar, súrefni, seiði, fóður og laun.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Staða bleikjueldis og framtíðarhorfur 2009 Geymt 2 október 2013 í Wayback Machine
- Bleikjueldi - Þróun og hönnun landeldisstöðva Geymt 15 október 2013 í Wayback Machine
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]
