Fara í innihald

Herlög

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Wojciech Jaruzelski lýsir yfir gildistöku herlaga í sjónvarpi í Póllandi árið 1981.

Herlög eru réttarfar sem komið er á í neyðartilvikum, yfirleitt með því að hátt settur herforingi er skipaður þjóðhöfðingi eða landstjóri og allt dómsvald, framkvæmdavald og löggjafarvald er fært til hans. Herlög taka gildi þegar þörf er á tímabundnum aðgerðum til að stjórn ríkis virki með eðlilegum hætti og hægt sé að tryggja öryggi borgaranna, til dæmis í stríði eða við hernám, eins og í Þýskalandi og Japan eftir ósigur þeirra í Síðari heimsstyrjöld. Herlög hafa líka tekið gildi þegar alvarlegar stjórnarkreppur eða óeirðir koma upp, til dæmis í kjölfar valdaráns, eins og í Taílandi 2006 og 2014, eða vegna pólitískra mótmæla, eins og í Póllandi 1981. Í einstaka tilvikum eru herlög sett í kjölfar náttúruhamfara þótt algengara sé að notast við neyðarlög í þeim tilvikum.

Herlög fela yfirleitt í sér afnám borgararéttinda, bann við samkomum og útgöngubann, og beitingu herréttar gagnvart almennum borgurum. Ekki er heimilt að beita herlögum á Íslandi þar sem landið er herlaust ríki, Alþingi getur hins vegar sett neyðarlög ef alvarlegar aðstæður koma upp.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.